Vatnsheld steinsteypa með kristaltækni
Bílastæðaplata í Hamraborg meðhöndluð með Kristaline 1.
Sumarið 2025 var 3.200 m2 bílastæðaplata í Hamraborg meðhöndluð með Kristaline1.
Hægt er að lesa meira um framkvæmdina og skoða ljósmyndir hér.
Straumhvörf í steypuframleiðslu.
Kristal sjálfþéttandi steypa með C-S-H virkni
Steypan verður bæði þéttari og sterkari!!
XYPEX hefur verið notað til að þétta steypu hér á landi síðan 1993 og er því komin um 30 ára reynsla á notkun þess.
XYPEX var borið á brú yfir ánna Breiðbalakvísl rétt austan Kirkjubæjarklausturs árið 1993.
Einnig var gerð rannsókn þar sem XYPEX ADMIX íblöndunarefni var rannsakað.
Niðurstaða var sú sama. ( sjá www.adall.is undir liðnum rannsóknir).
XYPEX efnin hafa verið ráðandi í heiminum alveg frá sjöunda áratug síðustu aldar.
Efnin hafa án nokkurs vafa sýnt fram á ágæti sitt og eru notuð um allan heim í dag.
Hins vegar hefur verðlagning á XYPEX haft takmarkandi áhrif á útbreiðslu og sölu.
Íslenskur aðall hefur því leitað logandi ljósi að efni sem væri með svipaða virkni en á hagkvæmara verði. Nú virðist sú leit á enda vera.
Á Spáni er aðili, Krystaline Technology S.A., sem hefur um skeið framleitt efni, KRYSTALINE, sem virðist vera sambærilegt XYPEX hvað varðar vatnsþéttingu á steinsteypu. Efnið hefur einnig C.S.H. virkni eða possolan virkni sem gerir steypuna mun sterkari.
KRYSTALINE er nýrra og er auk þess mun hagkvæmara í notkun en XYPEX. Sem dæmi þá þarf bara 1 kg/m3 af þessu efni sama hvert magn sements er í steypublöndunni, saman borið við 3-7 kg/m3 af XYPEX. Efnið er pakkað í 1 kílóa plasthulsur sem leysast upp í vatni og er sett með öðrum þurrefnum í steypuna.
Einnig er sami framleiðendi með steypuþekju og múrefni í ætt við XYPEX CONCENTRATE en með C-S-H virkni.
KRYSTALINE C-S-H er nú þegar notað í yfir 25 löndum víða um heim.
Sjá: http://www.krystalinetechnology.com/
Gísli Guðmundsson er Íslenskum aðli ehf. innan handar í tæknilegum efnum.
Íslenskur aðall ehf. hefur nú gert samning við framleiðenda um að vera fulltrúi hans á Íslandsmarkaði.
Stærsti hluti sements eru kalsíum síliköt.
Þegar sementið blotnar þ.e.a.s. þegar steypa er gerð þá verða til tvær kalsíum bindingar.
Annars vegar kalsíum – hýdroxíð kallað C-H
og hins vegar kalsíum-sílikat-hýdrad kallað C-S-H sem er hin eiginlega sementsefja.
C-H Ca(OH)2
C-H er líka kallað Portlandite. Það er í stuttu máli efnið sem við viljum hafa sem minnst af í steypunni.
Það er mjúkt og myndar m.a. gel og getur lekið út úr steypunni. C-H í sambandi við koldíoxíð og vatn leiðir til karbóniseringar steypunnar. Einnig geta myndast óæskileg sambönd við C-H í brennisteinsríku umhverfi og útkoman verður gifs.
Með KRYSTALINE minnkar C-H myndunin um 25%
C-S-H (CaO) +(SiO2) + (H2O)
Þetta efni verður til þegar steypa harðnar.
C-S-H er það sem bindur steypuna saman.
Þetta er æskilega kísilbindingin.
Með KRYSTALINE eykst C-S-H myndunin um 36%
Krystaline sjálfþéttandi efni byggir á hinni byltingarkenndu C-S-H tækni.
Með henni er komin næsta kynslóð vatnsþéttiefna.
Kristal C-S-H tæknin bætir hörnunarferli steypunnar til muna.
Það þýðir að C-S-H myndunin verður mun meiri og örari á kostnað C-H sem myndast mun hægar en ella.
Þetta verður til þess að steypan verður miklu þolnari og endingarbetri.
Ávinningur Krystaline C-S-H umfram önnur kristalefni:
Miklu meiri vatnsþétting til bæði styttri og lengri tíma.
Gríðarleg vörn gegn háum vatnsþrýstingi.
Merkjanlegur munur á bæði þrýstistyrk og togþoli.
Staðfest þétting örpóra við yfirborð á 28 daga hörnunartíma.
Rannsóknir sýna fram á sjálfþéttingu í sprungum allt að 0.7 mm að breidd.
Staðfest og vottað að Kristal C-S-H kemur í stað vatnsverjandi dúka.
Staðfest og vottað að Kristal C-S-H kemur í stað vatnsverjandi yfirborðsefna.
Stórlega aukið þol og ending steypunnar.
Heftuð myndun C-H ( Kalsíum Hýdroxíð) með Kristal C-S-H tækni næst eftirfarandi ávinningur umfram hefðbundna kristalvirkni.
Kemur í veg fyrir rýrnun og þannig helst styrkur og þéttleiki steypunnar varanlega.
Kemur í veg fyrir karboniseringu, ferli sem eykur hrörnun.
Kemur í veg fyrir tæringu vegna myndunar gifs og ettringer gels.
Eykur styrk og endingu steypunnar.
Með því að notast við Krystaline C-S-H tækni verður til verulegur sparnaður við vatsnþéttingu og viðhald verður í algjöru lágmarki um ókomna framtíð
PRA kerfið.
Í kafla 15 í skýrslu Bandarísku steinsteypustofnunarinnar „American Concrete Institude“ (ACI) 212.3R10 eru vatnsverjandi íblöndunarefni “ Permeability Reducing Admixtures“ ( PRA) í steypu skipt í tvo flokka. PRAN og PRAH.
N stendur fyrir vatnsvörn án þrýstings (Non-Hydrostatic)
H stendur fyrir vatnsvörn undir þrýstingi. (Hydrostatic)
Þegar kemur að vatnsvörn þá er hægt að skipta henni í:
Vatnsfráhrindandi vatnsvörn (HYROPHOBIC)
Vatnsdræg vatnsvörn (HYDROPHILIC)
Óvirk/ virk fylliefni
Vatnsfráhrindandi vatnsvörn
Lang flest efni sem falla í þennan hóp eru vatnsfráhrindandi.
Þetta eru sölt sem eru byggð á t.d. sápum, jurtaolíum, fitusýrum og olíum (Petroleum based).
Þessi efni mynda vatnsverjandi lag í holrýmum yfirborðsins en loka því ekki.
Algengast eru að söltin byggist á kalsíum, ammoníaki og butyl stearati.
Þessi efni ganga í samband við kalsíum hýdroxíð og mynda óuppleysanlegt kalsíum streat, þau mynda vatnshrindandi húð við yfirborð steypunnar.
Steypa sem meðhöndluð hefur verið með þannig efnum (þar með talið vax og bikandi fleyti (bituminous emulsions) nær ekki að loka holrýmum fyllilega
Þessi efni er ágætis vatnsvörn og veðurvörn þar sem þrýstingur er ekki til staðar.
Þó að í einhverjum tilfellum geti efnin þétt yfirborðið það mikið að þau féllu undir PRAH skilgreininguna. En þar sem þau hafa ekki sjálfþéttieiginleka ná þau því ekki.
Þessi efni fá skilgreininguna PRAN hjá ACI.
Óvirk/virk fylliefni.
Efni sem byggð eru á talki, bentóníti, kíslidufti, leir, kolvetnisresini og kaldri tjöru eru óvirk efni.
Virku efnin byggjast t.d. á kalki, sílíkötum og kísilkvoðu.
Þessi efni þétta yfirborðið en ná ekki að loka öllum holrýmum.
Vatnið nær því að komast inn í steypuna.
í sama flokk skipar ACI flugösku, gjalli, kísilryki og öðrum „Pozzolönum“.
Þessi efni fá skilgreininguna PRAN hjá ACI
Vatnsdræg vatnsvörn. KRYSTALINE
Vatnsdræga vörnin gengur aðalega út á að minka magn Kalsíum Hýdroxíð (CH) og auka magn Kalsíum Sílikat Hýdrad (CSH) í steypunni.
Þetta gerist með kristalframleiðslu þar sem vatnið þrýstist inn í steypuna.
Kristallarnir raðast upp í blautu rýminu og ná loks að þétta það þannig að vatnið kemst ekki lengur að.
Kristallarnir eru óuppleysanlegir og verða einfaldlega hluti af steypunni.
Ef nýjar sprungur myndast eða vatnið kemst inn á annan hátt fer kristalframleiðslan af stað að nýju og þéttir.
Þessi kristalvirkni gerir það að verkum að steypan þolir mikið vatnsálag.
Efni með þessari kristalvirkni eru skilgreind PRAH hjá ACI.
Þar sem ACI segir ekki hvaða efni standast PRAH heldur einungis hvað þarf til að fá þá skilgreiningu hefur KRYSTALINE látið gera rannsóknir sem sýna svo ekki sé um villst að efnið KRYSTALINE Add1 fellur á öllum sviðum undir skilgreininguna PRAH hjá ACI.