Sumarið 2025 var 3.200 m2 bílastæðaplata í Hamraborg meðhöndluð með Kristaline1.
Þetta er milliplata og því auðvelt að sjá hana neðan frá líka.
Mikill raki og rakaskemmdir voru í plötunni.
Þann 19. febrúar 2026 var platan skoðuð og myndir teknar. (sjá myndir þrjú til fimm).
Á myndum eitt og tvö sést þegar efnið er borið á plötuna.
Á mynd þrjú sjást greinilega rakar sprungur þar sem efnið hafði ekki verið borið á.
Mynd fjögur sýnir plötuna neðan frá og þarna sést greinilega hvernig rakin hefur komist í gegn og málningin flagnað.
Á mynd fimm sést hvernig platan lítur út í dag.
Þetta verkefni var fyrirskrifað af Ástráði Guðmundssyni tæknilegum ráðgjafa.
Samkvæmt samtali við Ástráð virðist sem þessi aðgerð sem var til þess gerð að þétta plötuna hafi virkað í alla staði.
Engin leki eða raki er lengur til staðar og nú stendur til að mála aftur plötuna að neðan.
Það er einnig mjög áhugavert hvernig múrhúðin sem virka efnið er í hefur staðist álag umferðar.
Lítil sem engin rykmengun er eftir að múrinn harðnaði almennilega.
Það skal tekið fram að Kristaline1 endist líftíma steypunnar þannig að hér er um varanlega lausn að ræða.




